Fréttir

Nýtt sjampóstykki "Flétta"

Ný vara frá Skessusápur, “Flétta” sjampó fyrir venjulegt hár er fáanlegt núna.

Við höfum fengið góðar viðtökur frá einum af okkar dyggasta viðskiptavini, Kötu Gribachevu. Hún lýsti því hversu auðvelt hárþvotta ferlið er með “flétta” sjampóinu og gaf því einkunnina 8,7/10, hún sagði reynslu sína af sjampóinu hafa verið mjög góð og gaf því einkunnina 9/10. Kata benti einnig á það að það er auðvelt að skola sjampóið úr hárinu, það gerir hárið hreint og lyftir því.

Lýsing:
“Flétta” sjampóið er fyrir venjulegt hár og inniheldur avókadó olíu og sítrónusýru sem er náttúrulegt andoxunarefni og rotvarnarefni. Avókadó olían styrkir hárið og byggir upp viðkvæmt, þurrt hár og gerir það slétt, mjúkt og heilbrigt. Sjampóið hefur framandi patchouli ilm. Nuddið milli lófanna til að láta freyðaog notaðu það eins og hvert annað sjampó. Til þess að fá sem bestar niðurstöður er hægt að skilja sjampóið eftir í hárinu í nokkrar mínútur. Þú getur notað næringu eftir á en ef þú vilt vera náttúrulegur er hægt að skola hárið með útþynntu ediki eða sítrónu safa. haldist skal frá augum.

Innihald: repjuolía, kókosolía, tólg, castor olía, ávokadóolía, sítrónusýra, náttúrulegt þráavarnarefni/rotvarnarefni.
Ilmur: patchouli ilmkjarnaolía
Litarefni: náttúruleg

INNIHELDUR ENGAR DÝRAVÖRUR, VEGAN, EKKI PRÓFAÐ Á DÝRUM
Allar vörur frá Skessusápum eru 100% náttúrulegar og handgerðar í litlum skömmtum. Það getur verið smávegislegur munur á lögun, lit, ilm og stærð varanna vegna þess að vörurnar eru hangerðar. Við notum náttúrulegar ilmolíur, þá getur verið að ilmurinn sé ekki jafn sterkur eins og þegar ónáttúrulegar ilmolíur eru notaðar.


Við vitum hversu erfitt það er að finna gott sjampó í sápustykki svo við bjuggum til “Flétta” sjampóið. “Flétta” kemur í tveimur stærðum, 55g stykki og 100g stykki sem þú getur prófað á lágu verði.
Made on
Tilda